sunnudagur, 30. mars 2014

Yndisleg helgi

Við litla fjölskyldan erum búin að eiga alveg frábæra helgi með góðu fólki. Mér finnst að allar helgar ættu að vera svona, og þá sérstaklega veðrið. Ég vona bara að veðrið haldist svona gott endalaust lengi, enn að öllum líkindum byrjar að snjóa aftur þegar tökuliðið fer heim til sín. Það virðist vera hefðin.

Eftir leikskóla á föstudaginn skelltum við okkur í sund á Fáskrúðsfjörð og var Hafþór Svanur hrókur alls fagnaðar, honum finnst sund æðislegt. Katrín og Hrafnhildur Sara komu með okkur, enn þurftu þó að vera í talsverði fjarlægð frá Hafþóri og skvettunum sem fylgja honum! :)
Á laugardaginn vorum við komin út í góða veðrið fyrir klukkan 9, fengum okkur góðan göngutúr og fórum síðan í íþróttaskólann. Fórum í meiri göngutúr og grilluðum síðan með pabba og mömmu, við erum aðeins of ákveðin í því að sumarið sé komið!

Í dag fórum við aftur í sund, að þessu sinni með Telmu Sól og Gunnu og við fórum á Eskifjörð enn það henntaði kuldastráinu mínu ekki jafn vel, hann vildi bara vera í pottinum og var alveg að sjóða mömmu sína! 

Svona dagar eru svo æðislegir, maður fær allt í einu bara alla heimsins orku þegar sólin fer að skína! :) Fyrir utan þetta dund okkar er líka búið að laga til í geymslunni aðeins og finna íbúðina svona að einhverju leyti, hún týnist almennt yfir vetrarmánuðina!
Til þess að toppa helgina algerlega fór ég líka að spila með vinkonum mínum bæði á föstudags og laugardagskvöldinu sem er með því skemmtilegasta sem ég geri!

Enn nú er kominn tími á svefn! Það virkar kannski ekki í marga daga í röð að fara að sofa á milli 3 og 4 og vera komin á fullt klukkan 8. 

Nú er bara að vona að veðrið haldist svona :) 

Þangað til næst! 

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er Mr Frances lincon, lögmæt og virtur peningar lánveitandi. Við lána fé út til einstaklinga sem þurfa á fjárhagsaðstoð, gefa okkur lán til fólks sem hafa slæmur trúnaður eða í þörf af peningum til að borga reikningana, til að fjárfesta á fyrirtæki. Hefur þú verið að leita að láni? þú þarft ekki að hafa áhyggjur, því þú ert á réttum stað ég bjóða lán á lágum vöxtum 4% þannig að ef þú ert í þörf af a lán ég vil að þú bara hafa samband við mig í gegnum þetta netfang: linconfinanceloan@outlook.com